Það er svo geggjað!

Tilfinningar eru órjúfanlegur hluti af lífi fólks. Það koma góðir dagar og slæmir daga og dagur eftir þennan dag. Maðurinn er tilfinningavera og þarfnast tilfinningalegrar leiðsagnar rétt eins röklegrar hugsunar. Hins vegar hef ég orðið þess var á undanförnum árum hafa tilfinningar fengið minnkandi vægi. Orðaforði landsmanna hefur lakað og ég vil meina sérstaklega á því sviði sem lýsir útliti hluta og tilfinningum okkar ef við tökum ekki með geðræna „sjúkdóma". Það má líklega rekja til þess að í stað þess að lesa bækur horfa flestir á myndir og er því lýsingarorðum ekki jafn mikillar þörf. Nú er algengast að þegar fólk vill vita tilfinningalega líðan annarrar manneskju spyrji það hvað segirðu gott? Sem er leiðandi spurning í stað þess að spyrja hvernig hefurðu það eða hvernig líður þér. Algengt svarið við spurningunni er einmitt orðið hress en svo skemmtilega vill til að áður fyrr vísaði það ekki til tilfinningalegs ástands heldur um sjúkleika manneskunnar.

Það er skondið í ljósi þess að óhressir einstaklingar glíma nú við geðræna sjúkdóma eins og þunglindi eða geðsveiflur (e. Bipolar)  en „sjúkdómar á borð við þessa hafa a síðast liðnum þrjátíu árum hafa fjölgað úr aðeins örfáum í yfir 800 ekki tilfelli heldur nýjar tegundir geðkvilla. Nú til dags tekur fólk lyf á borð við valíum og rídalín til að losna undan tilfinningum sínum sem eru mönnum fullkomlega eðlislægar í stað þess að vinna úr þeim með því að finna út hvað veldur vanlíðan þeirra. Þess í stað er nú kominn risavaxinn lyfjaiðnaður sem græðir milljarða á tilfinningum fólks. Hversu geðsjúkt er það?

Gott dæmi er þegar þrælar í afríku sem reyndu að strjúka út í frelsið gerðu þeir það ekki vegna þess að þeim langaði til að verða frjálsir heldur voru þeir haldnir sjúkdómi sem kallast drapetomania ef konur hér áður fyrr voru nógu vitlausar til þess að rísa upp á móti karlmönnum þá þjáðust þær af alverlegum sjúkdómi sem kallast hysteria. En þetta eru bara nokkur dramatísk dæmi sem sýna hvernig samfélagið er að færast óðfluga nær því að verða eins og einhverskonar vísindaskáldsaga.

En þar sem þessi skoðun mín gæti vel fallið undir að vera andstæð viðurkenndum gildum þá er ég líklega haldinn persónuleika röskun og því er ekkert að marka það sem ég segi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband