Íslendingar ættu að slíta stjórnmálasambandi við Breta

Hvernig sem við fórum að því að klúðra málunum hérna heima (löng saga) þá eigum hvorki við íslendingar eða íslensku bankarnir að sætta sig við þá óréttátu aðgerð af hálfu Breta. Þó svo að ég persónulega sé á móti bankastarfsemi eins og hun er stunduð í dag þá finnst mér aðgerðir breta óréttlátar og niðrandi og engan vegin gerðar á jafnréttisgrundvelli. Það ætti að vera lágmarks krafa íslendinga að krefjast þess að brúnn færi rök fyrir sínu máli en ljúgi ekki bara svona út í loftið og að hann taki sér góðan tíma og líti í spegill og spyrji sjálfan sig hvern andskotana hann ætli eiginlega að gera og hvern andskotann hann er búinn að gera.

Eins og´hér hefur áður komið fram þá blöskrar meira að segja breskum fjölmiðlum yfirganginn í honum. Hann virðist greinilega ekki gera sér grein fyrir að beiting hryðjuverkalaga gegn íslendingum hafi bæði valdið að Kaupthing varð endanlega gjaldþrota og með því hefur breskur almenningur og sveitarfélög raunar tapaði mun meira en ella því kaupþing þar breskur banki í íslenskri eigu hefði að öllu eðlilegu geta borið skil á þessu að því gefnu að þeir voru ný búnir að fá stærðarennar hagstætt lán frá sænska seðlabankanum deginum áður til viðbótar við lánið frá þeim íslenska og því kaldhæðnislega samdægurs loforði brúns um að stærðarinnar fjárhagslegan stuðning við alla breska banka. Gordon Brúnn gaf þar að auki út ásakanir og yfirlýsingar sem að við vitum byggja engan vegin á staðreyndum. Meira að segja Bresk lögstofa ráðleggur íslendingum að taka alvarlega til greina að stefna Bretum fyrir alþjóðlegum dómsstólum.

Aðgerðir Brúns eru í raun ekkert nema ryk í augun á Bretum ætlaðar til þess að stinga íslendinga þar sem þeir lyggja í blóði sínu á jörðinni.

Í ljósi þess verður að teljast réttast þegar þessi Breska sendi nefnd kemur að henni verði með því sama stefnt og hún send til baka og að hún taki með sér breska sendiherrann í leiðinni. Að því gefnu ættum við íslendingar að leita til okkar sönnu og raunverulegu vina til margra alda og ríða á vaðið og leita skjóls hjá Rússum og segja okkur úr nató til að spara í kreppunni. Það voru jú Rússar en ekki Bretar sem voru fyrstir til að viðurkenna 200 mílna lögsögu Íslendinga.


mbl.is Bretar knésettu stærsta fyrirtæki Íslendinga með valdníðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ok Getur eitthver svarað tessu? teir réðust á okkur 1940 og hertóku. Í trígang reyndu teir að stela fiskinum okkar og beittu tá á okkur freigátum sem á teim tíma voru með teim fullkomnustu í heimi.

Hvernig má tað vera að tetta sé talin vinatjóð okkar? Er bara ekki að ná tessu!!

óli (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 21:41

2 Smámynd: Aron Ingi Ólason

hehe já en bretar hafa verið vinaþjóð bna sem sjálfstæðisflokkurinn hefur verið fastur upp í nösunum á allt fram til dagsins í gær það er trúlega þessvegna sem þeir voru kallaðir vina þjóð einhversagði jú vinir vina minna eru vinir mínir en  svo sagði einhver annar að ríkið eigi í rauninni ekki vini heldur engöngu hagsmuni.

Aron Ingi Ólason, 13.10.2008 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband