Hauga lýgi! Aukinn skattur á nær allan almenning samkvæmt augljósum útreikningum frá tölum hagstofunnar.

þetta er algert bull og sýnir hve öflug rannsóknar blaðamennskan er hjá mogganum. ég reiknaði þetta saman í rólegheitunum í exel á innan við tíu mínutum.

Steingrímur J. reiknar sem sagt með því að af 317.440 íbúum landsins samhvæmt spá hagstofunnar fyrir árið 2010 komi 312700 manns til með að greiða skatt. samkvæmt hagstofunni eru um 113433 annað hvort undir átján ára aldri eða 67 ára og eldri þar af eru 57236 12 ára og yngri en þeir falla líklega allir undir þessi 158 þús sem greiða munu skatta í lægsta skatta flokkinum. (eingar upplýsingar af skattstofni íslendinga  fundust á hagstofunni)

þess má geta að meða neysla lægst launaðasta fjórðungsins á íslandi árið 2007 (nýustu tölur sem ég fann á hagstofuni) stóð í rúmlega 345000 kr á mánuði en þess ber að vænta að menn nú á dögum spari mun meira við sig en verðbólga var á hinnbóginn auðvitað að sama skapi mun minni þá, auk þess sem greiðsla fyrir húsnæði hefur auðvitað stórhækkað. því er von að maður spyrji sig hvort nokkur maður getur lifað undir þessu 200.000 kr skattþrepi og hvort þetta sé ekki einfaldlega falinn skatthækunn á mest nær allan skattstofninn fyrir utan ellilífeyrisþega?


mbl.is Helmingur með undir 200.000 kr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég var að bíða eftir að einhver (þú!) með bloggsíðu myndi fatta þetta talnaspil, eða þessa illa skrifaðu frétt. Ég þurfti ekki einu sinni Excel til að sjá að þetta væri bull ;-)

Alveg með ólíkindum að birta svona. Engar upplýsingar eru betri en rangar.

áhugasamur (IP-tala skráð) 23.2.2010 kl. 23:36

2 Smámynd: Aron Ingi Ólason

þakka athugasemdina ég sá nú um leið að þetta gæti ekki staðist en ég reinaði þetta samt út svona til að hafa haldbær rök.

Aron Ingi Ólason, 23.2.2010 kl. 23:44

3 identicon

ég tók nú ekki inn tölur hagstofunnar. Þá hefði ég eflaust þurft að setja upp dæmið í Excel og Co. Þökk sé þér fyrir að benda á þetta rugl.

áhugasamur (IP-tala skráð) 23.2.2010 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband